Fara í innihald

Yrki (forrit)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Spjallmenni)

Yrki eða botti er tölvuforrit sem vinnur tiltekin verk fyrir notanda eða annað forrit eða líkja eftir mannlegu atferli; mörg þeirra spretta upp frá gervigreindarrannsóknum. Nafnið „botti“ er tekið úr enskunni og er stytting á orðinu „robot“; sem þýðir almennt sjálfstætt starfandi vélbúnaður.[1]

Almennt þegar talað er um yrkja, þá er átt við einföld forrit sem eru stundum kölluð „erindrekar“, sem vinna einföld verkefni fyrir notanda eða önnur forrit samkvæmt fyrirmælum sem eru yfirleitt mjög einhæf og endurtekin. Dæmi um slíka erindreka eru yrkjar sem Wikipedia notfærir sér til að yfirfara efni, uppfæra smáatriði, flokka og skapa tengla, athuga eftir og uppfæra úrelta tengla, svo eitthvað sé nefnt.

Það eru til bæði góðir og slæmir yrkjar sem hægt er að finna á netinu; og hafa þeir allir sinn sérhæfða tilgang. Góðir yrkjar aðstoða t.d. við öflun og úrvinnslu upplýsinga, þýðingar og efnisleit. Slæmir yrkjar t.d. valda ama, stela persónulegum upplýsingum, dreifa ruslpósti, blekkja fólk eða gera árásir á tölvukerfi.

Eliza var eitt fyrsta spjallmennið. Hún svaraði með rituðum texta á tölvuskjá.
Spjallmenni aðstoðar viðskiptavini

Spjallyrki eða spjallmenni (e. chatbot) er yrki sem tekur þátt í samræðum með tali eða rituðum texta. Slík forrit líkja eftir samræðum og spjalli milli fólks en eru þó ekki (árið 2019) svo fullkomið að þau standist Turing-prófið. Spjallmenni eru oft notuð í umræðukerfum meðal annars til að þjónusta viðskiptavini eða til að safna upplýsingum.Sum spjallmenni nota háþróuð tungumálakerfi en sum vinna þannig að þau skanna inntak í leit að ákveðnum lykilorðum og svara síðan með viðeigandi texta eða textasniði sem þau sækja í gagnagrunn.Lánasjóður íslenskra námsmanna tók í notkun spjallmenni í lok árs 2019.

Það eru til ýmsar tegundir af sérsniðnum spjallyrkjum, og það er mikið um að fyrirtæki og þjónustur nýti sér spjallyrkja á vefsíðum sínum til að svara einföldum eða algengum spurningum. Þeir geta einnig aðstoðað við að setja saman upplýsingar í form eða taka við skilaboðum og sér um að koma þeim til skila.

Reglubundnir spjallyrkjar

[breyta | breyta frumkóða]

Spjallyrkjar sem vinna útfrá skilyrðisreglum eru oft einfaldir, gerðir til að taka eftir tilgreindum orðum í því sem þú segjir og útfrá því velja tilbúin svör og eiga erfitt að höndla samskipti sem fara útfyrir handritið sem þeir fylgja.

Gervigreindar spjallyrkjar

[breyta | breyta frumkóða]

Þeir yrkjar sem nýta sér gervigreind eru þjálfaðir á upplýsingum, yfirleitt sérhæfðir í tilteknu umfangsefni sem gagnast þeim á því sviði sem þeir verða svo notaðir í, t.d. taka við pizza pöntunum, bóka flug eða veita upplýsingar fyrir ferðaþjónustu. Ólíkt reglubundnum spjallyrkjum, þá eru samskipti við þessa yrkja líkari flæði samskipta við raunverulegt fólk, í staðinn fyrir fyrirfram útbúin svör sem eru ávalt þau sömu. Það eru einnig til yrkjar sem hafa sköpunargervigreind, sem leyfir þeim að skapa hágæða texta, myndir eða annað efni útfrá spurningum eða tilskipun.

Blandaðir spjallyrkjar

[breyta | breyta frumkóða]

Það eru einnig til spjallyrkjar sem eru reglubundnir en notfæra sér samskiptarhæfileika gervigreindar.

Vefskriðill

[breyta | breyta frumkóða]

Vefskriðill eða vefkönguló (e. crawler) er yrki sem hefur það hlutverk að flokka og skjala vefsíður og innhald þeirra fyrir leitarvélar. Nafnið könguló er tilvísun í að þessi gerð af yrkjum skríða yfir veraldarvefinn.[2]

Amayrki (e. spambot) er yrki sem er sérstaklega hannaður til að senda fólki ruslpóst og annað slíku efni sem veldur ama á vefsíðum, spjallborðum eða í gegnum tölvupóst. Innihald efnis sem þeir deila er ýmist auglýsingar, bull eða tilraunir til blekkinga og peningasvindls. Árásir á tölvukerfi eru einnig framkvæmd af slæmum yrkjum.

Öryggiskerfi á borð við CAPTCHA hafa verið notuð til þess að koma í veg fyrir að slíkir amayrkjar laumi sér inn á samfélagsmiðla og vefsíður, sem fær viðkomandi til að framkvæma einfalt verkefni eða spyr ákveðinna spurninga sem flestir slíkir yrkjar ættu erfitt með að framkvæma.

Yrkjar í tölvuleikjum

[breyta | breyta frumkóða]

Yrkjar eru oft notaðir í tölvuleikjum til að herma eftir leikspilara sem eru notaðir t.d. til að bjóða upp á stafrænan mótspilara í leikjum sem geta verið spilaðir með eða gegn öðru fólki. Notkun yrkja í hefðbundnum fjölspilara-tölvuleikjum er hins vegar óheimil í flestum tilfellum, þar sem það er talið sem svindl.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Hrafn Þorri Þórisson (9. janúar 2006). „Hvað er yrki eða botti?“. Vísindavefur.is. Sótt 24. júní 2026.
  2. „Vefskriðill“. Tölvuorðasafnið (Árnastofnun). Sótt 24. júní 2026.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.