Ojos del Salado
Útlit
(Endurbeint frá Nevado Ojos del Salado)

Nevado Ojos del Salado er hæsta fjall Síle, annað hæsta fjall Andesfjalla og hæsta eldfjall heims. Það er 6.893 metra hátt og liggur á landamærum Síle (Atacama-hérað) og Argentínu (Catamarca) sunnan við hásléttuna Puna de Atacama. Þar sem það er á mjög þurru svæði myndast takmörkuð snjóhula á fjallinu. Eldvirkni var í fjallinu var síðast í kringum árið 750 [1]. Fjallið var klifið fyrst árið 1937 af pólskum fjallgöngumönnum.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Nevados Ojos del Salado Global Volcanism Program