Fara í innihald

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Virk ár548 f.Kr. (elsta tilvitnun) til nútímans
FlokkarBorðspil
Fjöldi spilara2
Tími uppsetninguÖrstutt
Leiktími
  • Almennt: 20–90 mínútur
  • Keppnis: 1–6 klst. eða lengur*
SlembilukkaEngin
Samheiti
  • Weiqí (zh)
  • Igo (jp)
  • Paduk/Baduk (ko)
*Þegar verið er að keppa þá geta leikir staðið yfir 16 klst og skiptast þá í margar lotur yfir tveggja daga tímabil.

er borðspil sem tveir spila og reyna að ná yfirráðum yfir sem mestu landsvæði á leikborðinu. Leikurinn kemur upphaflega frá Kína fyrir meira en 2500 árum síðan og er talið vera það borðspil sem hefur verið spilað lengst samfleitt í sögu mannkyns.[1] Könnun frá árinu 2016 sem International Go Federation tók á 75 meðlimaþjóðum segjir að þá voru yfir 46 milljón manns á heimsvísu sem kunnu að spila Gó, þar af var meirihlutinn frá Austur Asíu þar sem spilið er vinsælast.[2]

Það er kallað wéiqí á kínversku (hefðbundin kínverska: 圍棋; einfölduð kínverska: 围棋), igo (囲碁) eða go (碁) á japönsku, og baduk á kóresku (hangúl: 바둑). Spilið á uppruna sinn í Kína löngu áður en elstu ritheimildir á 5. öld f.Kr. geta þess. Það er vinsælast í Austur-Asíu, en hefur á síðari árum notið nokkurra vinsælda annars staðar líka. Leikmenn skiptast á að spila steinum í sínum lit, annaðhvort svörtum eða hvítum, á leikborð. Markmið leiksinns er að safna stigum sem fást annars vegar með því að umkringja "landsvæði" og hinsvegar með því að umkringja steina andstæðingsinns og þannig breyta þeim í "fanga". Sá leikmaður sem hefur stærsta landsvæðið samanlagt við fjölda fanga vinnur leikinn. Gó er þekkt fyrir að vera taktískt flókið spil þrátt fyrir einfaldar reglur.

Gangur leiks

[breyta | breyta frumkóða]

Gó er spilað á leikborði sem kallast goban ( 碁盤) á japönsku, qípán (棋盤) á kínversku og badukan (바둑판) á kóresku.[3]

Almennt er borðið með 19x19 hnit af línum, en það eru til 13x13 og 9x9 útgáfur sem stytta gang leiksins. Steinar eru lagðir á skurðpunktana á línunum, en ekki inn í reitina sem þær mynda. Hver leikmaður velur sér öskju af einlitum steinvölum, svörtum eða hvítum, og sá svarti byrjar leikinn.

Tilteknir skurðpunktar á borðinu eru merktir með stærri punkti, og kallast þeir stjörnupunktar (staðsettir á fjórðu, tíundu og sextándu línu). Þegar verið er að spila með byrjendum, þá eru settir forgjafar-steinar af þeirra lit á þessa stjörnupunkta til þess að jafna leikinn. Annars er borðið venjulega autt í upphafi leiks.

Það eru í raun einungis tvær grunnreglur sem þarf að kunna til að geta spilað.[4]

  1. Steinn (eða hópur af steinum sem snertast á línunum) sem er á borðinu þarf að hafa í það minnsta 1 opna leið út frá sér til að halda lífi, eða með öðrum orðum þá þurfa þeir að geta „andað“.
    • Ef steinn/hópur hefur ekki lengur neinar opnar leiðir hjá sér, þá „kafnar“ hann og steinarnir eru þá teknir til fanga af andstæði og fjarlægðir af borðinu.
  2. Það er bannað að framkvæma aðgerð sem færir leikinn í fyrri borðstöðu, það þarf að gera eitthvað nýtt.

Þar sem reglurnar eru svo einfaldar, þá er í raun ekkert aldurstakmark á þessum leik eins lengi og viðkomandi getur skilið reglurnar. Það sem gerir leikinn flókinn er þegar leikspilarar beita kænsku sinni til að ná yfirráðum á borðinu.

Í grunninn þá er það sá sem hefur eignað sér stærsta svæðið á borðinu í samræmi við þann fjölda af steinum sem þeir hafa fangað sem vinnur leikinn.Það eru nokkrar aðferðir til að reikna stigin.

Helstu hugtök

[breyta | breyta frumkóða]
Helstu hugtökin í Gó
Hugtak Lýsing
Frelsi (e. liberties) Þetta eru opnar leiðir sem eru í kringum steina á borðinu. Steinar sem eru tengdir saman á línunum deila þessu frelsi. Hægt er að hugsa um þetta frelsi sem leiðir fyrir steininn/hópinn að „anda“ og þegar allar leiðir lokast og steinninn er umkringdur þá „kafnar“ hann og er þá tekinn af borðinu.
Atari Atari er hvað það kallast þegar steinn/hópur hefur aðeins eitt frelsi eftir. Þetta er mjög svipað og þegar maður segjir skák í tafli til að segja að það sé hægt að drepa kónginn. Það er hins vegar ekki nauðsynlegt að bregðast við því í Gó eða láta andstæðinginn vita, en gott að vera meðvitaður um það.
Augu Þegar hópur af samlitum steinum nær að umkringja stakan auðan punkt, þá kallast það auga. Andstæðingur getur ekki sett sinn stein í eyðuna því þá myndi hann samstundis „kafna“ og verða tekinn til fanga (nema aðgerðin kæfði hópinn, ef þetta var þeirra síðasti auði punktur). Ef hópur af steinum nær að mynda sér tvö augu, þá er það búið að tryggja sér líf, því andstæðingur getur þá aldrei fangað hópinn.
Fangi Steinar sem eru fjarlægðir af borðinu og geymdir fyrir stigagjöf í lok leiks.
Landsvæði Auða svæðið sem viðkomandi hefur náð að umkringja með sínum lit í gangi leiks.
Komi Auka stig sem sá sem lék hvítan fær í lok leiks í skaðabætur fyrir að vera seinni til leiks, þetta er til þess að leiðrétta stigagjöf.

Leikslok og stigagjöf

[breyta | breyta frumkóða]

Það eru tvær leiðir til að reikna út stigin í lok leiks, samkvæmt japönskum reglum eða kínverskum reglum. Það getur stundum verið lúmskt að finna út hvor hefur meira landsvæði í flóknari leikjum.

  1. Japanska kerfið:
    • Það sem telst sem stig: landsvæði og fangaðir steinar.
    • Einföld leið til að sjá úr þessu er að setja alla fangana inn á borðið aftur til að fylla inn í landsvæði andstæðingsins. Sá sem hefur meira autt landsvæði að því loknu er augljóslega sigurvegarinn.[5]
    • Útreiknun: landsvæði (autt svæði) - fangaðir steinar + komi = lokastig
  2. Kínverska kerfið
    • Það sem telst sem stig: landsvæði og eftirlifandi steinar á borðinu.
    • Útreikningur: landsvæði (autt svæði) + steinarnir á borðinu + komi = lokastig

Tignir og stöður

[breyta | breyta frumkóða]

Gó er með sitt kerfi til að gefa til kynna hæfni viðkomandi í leiknum sem er svipað og beltakerfin í sjálfsvarnaríþróttum.[6] Að ná 1.dan er jafngilt því að vera með svarta beltið í þessu kerfi. Munurinn á hverju þrepi á sama stigi er einn forgjafar-steinn, sem dæmi; ef 5k leikmaður spilar á móti 1k leikmanni, þá þyrfti 5k spilarinn fjóra forgjafar-steina til að jafna leikinn.

Tegund stöðu Millibil Stig
Tveggja-stafa kyu 30–21k Byrjandi
Tveggja-stafa kyu 20–10k Hversdagslegur
Stök-tala kyu 9–1k Miðstig / Félagsmaður
Áhugasamur dan 1–7d Framúrskarandi
Faglegur dan 1–9p Atvinnumaður

Það er einnig sérstakir titlar eins og framúrskarandi-titillinn8.kyu og atvinnu-titillinn 10.dan, en það er umfram þetta kerfi.

Þrátt fyrir að flestar stofnanir nota þetta stöðukerfi þá er enginn alþjóðleg samhæfing. Aðferðirnar sem eru notaðar til að reikna út og afhenda þessar stöður geta verið mismunandi eftir löndum og á rafrænum Gó leikjaþjónum. Þetta þýðir að sá sem gæti verið 3.kyu í einu landi geti verið talinn sem 5.kyu í því næsta.[7]

Gó spilað af tölvum

[breyta | breyta frumkóða]

Gó er talið erfiðara en skák, alla vega tókst tölvum mun síðar að ná yfirburðum yfir mönnum í þeirri grein. Það tókst með AlphaGo gervigreindarforritinu frá Google, sem síðar var endurbætt í AlphaGo Zero, og svo útvíkkað í þriðju útgáfunni undir nafninu Alpha Zero yfir í forrit sem getur lært og spilað marga sams konar leiki (þ.e. allar upplýsingar eru þekktar á borðinu), m.a. gó og skák og vinnur fólk þeim (og aðrar skáktölvur/forrit). Ólíkt hefðbundum skákforritum, notast þessi forrit við annars vegar tauganet og líka svokallaða Monte-Carlo trjáaleit (e. Monte-Carlo tree search, MCTS).

Spilað á Íslandi

[breyta | breyta frumkóða]

Íslenska Go Félagið var formlega stofnað 6. september 2014, en það hafði verið virkur hópur í einhver ár þar á undan.[8]

  1. Magic, Go (31 janúar 2024). „The Brief History of Go: A Chronicle from Ancient Times to Worldwide Acclaim“. Go Magic (bandarísk enska). Sótt 2 júní 2026.
  2. „Go Population Survey“ (PDF). The International Go Federation. 2016.
  3. „Goban“. Go Magic (bandarísk enska). Sótt 2 júní 2026.
  4. „How to Play Go | British Go Association“. www.britgo.org. Sótt 2 júní 2026.
  5. „Spilareglur fyrir nýja Go leikmenn“ (PDF). Íslenska Go félagið. 2023.
  6. Magic, Go (10 janúar 2025). „Go Ranks & Ratings: Kyu, Dan and Elo“. Go Magic (bandarísk enska). Sótt 2 júní 2026.
  7. „Rank - worldwide comparison at Sensei's Library“. senseis.xmp.net. Sótt 2 júní 2026.
  8. „Icelandic Go Association officially founded“. Íslenska Go Félagið (á facebook). Sótt 2. júní 2026.