Fara í innihald

Emma Thompson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dame
Emma Thompson
Emma Thompson árið 2025.
Emma Thompson árið 2025.
Upplýsingar
FæddEmma Thompson
15. apríl 1959 (1959-04-15) (67 ára)
Hammersmith, London, Englandi
ÞjóðerniBresk
Ár virk1982–
MakiKenneth Branagh (g. 1989; sk. 1997)
Greg Wise (g. 2003​)
Börn2
Óskarsverðlaun
Emmy-verðlaun
Besta gestaleikkona í gamanþáttum fyrir Ellen (1998)
Golden Globe-verðlaun
BAFTA-verðlaun

Dame Emma Thompson (f. 15. apríl 1959) er bresk leikkona og handritshöfundur. Hún hefur verið virk í leiklist í rúma fjóra áratugi bæði í leiksýningum, kvikmyndum og sjónvarpi og hefur meðal annars unnið tvenn Óskarsverðlaun, þrenn BAFTA-verðlaun, tvenn Golden Globe-verðlaun og ein Primetime Emmy-verðlaun. Árið 2018 sæmdi Elísabet 2. Bretadrottning Thompson riddaranafnbót fyrir framlög hennar til leiklistar.[1]

Foreldrar Emmu Thompson eru leikararnir Eric Thompson og Phyllida Law. Hún gekk í Newnham-skóla við Cambridge-háskóla, var þar meðlimur í leikfélaginu Footlights og birtist í sketsaþáttunum Alfresco (1983–1984). Árið 1985 lék Thompson aðalhlutverkið í uppsetningu á söngleiknum Me and My Girl á West End, sem var tímamótaskref í ferli hennar. Árið 1987 varð Thompson kunn fyrir leik sinn í tveimur sjónvarpsþáttaröðum BBC, Tutti Frutti og Á ógnartímum, og vann sjónvarpsverðlaun BAFTA sem besta leikkonan fyrir frammistöðu sína í báðum þáttaröðunum. Snemma á tíunda áratugnum vann Thompson oft með þáverandi eiginmanni sínum, leikaranum og leikstjóranum Kenneth Branagh, í myndum á borð við Hinrik V. (1989), Örlagavefur (1991) og Ys og þys út af engu (1993).

Thompson vann bæði BAFTA-verðlaun og Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hávarðsendi árið 1992.[2] Árið 1993 var Thompson tilnefnd til tvennra Óskarverðlauna, sem besta leikkonan og besta aukaleikkonan, fyrir leiki sína sem húsþerna í myndinni Dreggjar dagsins og sem lögfræðingur í Í nafni föðurins og varð þar með ein fárra leikara sem hafa verið tilnefndir í báðum verðlaunaflokkunum sama árið. Thompson bæði lék í og skrifaði handritið að myndinni Vonir og væntingar (1995) og hlaut fyrir það Óskarsverðlaunin fyrir besta handritið byggt á öðru verki. Hún varð þar með eina manneskjan í sögu Óskarsverðlaunana til að vinna verðlaun bæði sem leikari og handritshöfundur.[3] Thompson hefur einnig hlotið jákvæða dóma fyrir hlutverk sín í myndunum Í fánalitunum (1998), Ástin grípur alla (2003), Saving Mr. Banks (2013), Late Night (2019) og Good Luck to You, Leo Grande (2022).

Meðal annarra þekktra hlutverka Thompson má nefna leik hennar sem Trelawney prófessor í Harry Potter-myndunum (2004–2011), Nanny McPhee (2005) (sem hún skrifaði einnig), Skrýtnara en skáldskapur (2006), An Education (2009), Men in Black 3 (2012) og hliðarmyndin Men in Black: International (2019), Hin hugrakka (2012), Fríða og dýrið (2017), Cruella (2021) og Matthildur (2022). Í sjónvarpi hefur hún meðal annars birst í Óbuguð (2001), Englar í Ameríku (2003), The Song of Lunch (2010), Lér konungur (2018) og Years and Years (2019). Hún lék fröken Lovett í uppsetningu Lincoln-miðstöðvarinnar á söngleiknum Sweeney Todd eftir Stephen Sondheim árið 2014.

Thompson hefur einnig samið þrjár barnabækur um Pétur kanínu með leyfi frá útgáfufélagi Beatrix Potter.

Kvikmyndaskrá

[breyta | breyta frumkóða]

Sem leikkona

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Kvikmynd Hlutverk Leikstjóri Athugasemdir
1989Hinrik V. (Henry V)Katrín af ValoisKenneth Branagh
The Tall GuyKate LemmonMel Smith
1991Örlagavefur (Dead Again)Grace / Margaret StraussKenneth Branagh
Af fingrum fram (Impromptu)Claudette, hertogaynja af AntanJames Lapine
1992Hávarðsendi (Howard's End)Margaret SchlegelJames Ivory
Endurfundir (Peter's Friends)Maggie ChesterKenneth Branagh
1993Ys og þys út af engu (Much Ado About Nothing)Beatrís
Dreggjar dagsins (Remains of the Day)Frú KentonJames Ivory
Í nafni föðurins (In the Name of the Father)Gareth PeirceJim Sheridan
1994Lilli (Junior)Diana ReddinIvan Reitman
1995CarringtonDora CarringtonChristopher Hampton
Vonir og væntingar (Sense and Sensibility)Elinor DashwoodAng LeeEinnig handritshöfundur
1997Inn úr kuldanum (The Winter Guest)FrancesAlan Rickman
1998Í fánalitunum (Primary Colors)Susan StantonMike Nichols
Júdasarkossinn (The Judas Kiss)Sadie HawkinsSebastian Gutierrez
2000Blessað barnið (Maybe Baby)DruscillaBen Elton
2002Gullplánetan (Treasure Planet)Kapteinn Amelía (talsetning)Ron Clements
John Musker
2003Draumur um Argentínu (Imagining Argentina)CeciliaChristopher Hampton
Ástin grípur alla (Love Actually)KarenRichard Curtis
2004Harry Potter og fanginn frá Azkaban (Harry Potter and the Prisoner of Azkaban)Sybill Trelawney prófessorAlfonso Cuarón
2005Nanny McPheeNanny McPheeKirk JonesEinnig handritshöfundur
2006Skrýtnara en skáldskapur (Stranger Than Fiction)Karen EiffelMarc Forster
2007Harry Potter og Fönixreglan (Harry Potter and the Order of the Phoenix)Sybill Trelawney prófessorDavid Yates
I Am LegendAlice KrippinFrancis LawrenceEkki getið á kreditlista
2008Ættarsetrið (Brideshead Revisited)Lafði MarchmainJulian Jarrold
Last Chance HarveyKate WalkerJoel Hopkins
2009An EducationSkólastýraLone Scherfig
The Boat That RockedCharlotteRichard Curtis
2010Nanny McPhee and the Big BangNanny McPheeSusanna WhiteEinnig handritshöfundur
2011Harry Potter og dauðadjásnin - 2. hluti (Harry Potter and the Deathly Hallows – Part 2)Sybill Trelawney prófessorDavid Yates
2012Men in Black 3Agent OBarry Sonnenfeld
Hin hugrakka (Brave)Elinóra drottning (talsetning)Mark Andrews
Brenda Chapman
2013Beautiful CreaturesFrú Lincoln / SarafineRichard LaGravenese
Saving Mr. BanksP. L. TraversJohn Lee Hancock
Gamlar glæður (The Love Punch)Kate JonesJoel Hopkins
2014Men, Women & ChildrenSögumaður (talsetning)Jason Reitman
Effie GrayLafði EastlakeRichard LaxtonEinnig handritshöfundur[4]
2015A Walk in the WoodsCatherine BrysonKen Kwapis
The Legend of Barney ThomsonCemolinaRobert Carlyle
BurntDr. RosshildeJohn Wells
2016Alone in BerlinAnna QuangelVincent Perez
Bridget Jones eignast barn (Bridget Jones' Baby)Dr. RawlingsSharon MaguireEinnig handritshöfundur
The Doubt Machine: Inside the Koch Brothers' War on Climate ScienceSögumaður (talsetning)Bruce LiveseyHeimildarmynd
2017Fríða og dýrið (Beauty and the Beast)KetilbjörgBill CondonEinnig talsetning
Sea SorrowSylvia PankhurstVanessa Redgrave
The Meyerowitz StoriesMaureenNoah Baumbach
The Children ActFiona MayeRichard Eyre
2018Johnny English Strikes AgainForsætisráðherrannDavid Kerr
2019Late NightKatherine NewburyNisha Ganatra
Týndi hlekkurinn (Missing Link)Dóra (talsetning)Chris Butler
Men in Black: International[5]Agent OF. Gary Gray
How to Build a GirlAmanda WatsonCoky Giedroyc
Last ChristmasPetra AndrichPaul FeigEinnig handritshöfundur og framleiðandi
2020Dagfinnur dýralæknir (Doolittle)Polynesia (talsetning)Stephen Gaghan
2021CruellaVon Hellman barónessaCraig Gillespie
2022Good Luck to You, Leo GrandeNancy StokesSophie Hyde
What's Love Got to Do with It?CathShekhar Kapur
Matthildur (Matilda the Musical)Karítas MínherfaMatthew Warchus
2025Bridget Jones: Mad About the BoyDr. RawlingsMichael Morris
Dead of WinterBarbBrian Kirk
2026Spæjarasauðirnir (The Sheep Detectives)Lydia HarbottleKyle Balda
  • Þorsteinn Erlingsson (1. maí 1994). „Emma Thompson“. Vikan. bls. 62–65.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Emma Thompson á lista drottningar“. mbl.is. 9. júní 2018. Sótt 7. apríl 2026.
  2. „Er ekki lengur í skugga eiginmannsins“. Morgunblaðið. 4. apríl 1993. bls. 45.
  3. Máni Snær Þorláksson (21. febrúar 2023). „Hræðilegur hluti af starfinu“. Vísir. Sótt 7. apríl 2026.
  4. Eden, Richard (23. desember 2012). „Emma Thompson is kept waiting by John Ruskin film“. The Telegraph. London. Sótt 14 janúar 2013.
  5. Chitwood, Adam (5. desember 2018). „The Men in Black Reboot Is Titled Men in Black International. Collider. Sótt 5. desember 2018.
  Þetta æviágrip sem tengist leikurum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.