Amazonas
Útlit


Amazonas er stærsta fylki Brasilíu, staðsett í norðurhluta landsins. Það er um 1.570.000 ferkílómetrar að stærð eða stærra en Síle, Paragvæ og Úrúgvæ samanlagt. og eru íbúar 4,3 milljónir (2025). Höfuðborgin er Manaus. Nafnið er vísun í Amasónfljót og þekur Amasónfrumskógurinn allt fylkið. Hæsti punktur Brasilíu, Pico da Neblina, er í norðurhluta Amazonas.
Nágrannafylki eru Roraima, Pará, Mato Grosso, Rondônia og Acre. Lönd sem eiga landamæri að fylkinu eru Perú, Kólumbíu og Venesúela.