1567
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1567 (MDLXVII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Eggert Hannesson lét af embætti hirðstjóra.
- Gíslakirkja í Skálholti var vígð.
- Kristján Villadtsson varð skólameistari í Skálholti.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Helga Jónsdóttir, biskupsfrú í Skálholti, kona Odds Einarssonar (d. 1662).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Matthíasson, prentari og prestur á Breiðabólstað í Vesturhópi.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 20. janúar - Portúgalar ráku Frakka úr Rio de Janeiro.
- 4. febrúar - Zhu Zaiji varð keisari Ming-veldisins í Kína.
- 10. febrúar - Henry Stuart, lávarður af Darnley, eiginmaður Maríu Stúart Skotadrottningar, myrtur í Edinborg.
- 13. mars - Spánverjar drápu uppreisnarmenn nærri Antwerpen og markaði það upphaf áttatíu ára stríðsins.
- 15. júlí - María Stúart beið ósigur fyrir skoska aðlinum við Carberry Hill og er fangelsuð í Loch Leven-kastala.
- 24. júlí - María Stúart neydd til að afsala sér völdum í hendur sonar síns, Jakobs 6.
- 25. júlí - Borgin Caracas var stofnuð sem Santiago de León de Caracas á svæði sem varð síðar Venesúela.
- 22. ágúst - Filippus 2. Spánarkonungur sendi hertogann af Alba (járnhertogann) til Hollands með 10.000 hermenn og ótakmörkuð völd til að bæla niður uppreisnina. Vilhjálmur þögli var gerður útlægur.
- 29. september - Vopnahléi í Frönsku trúarbragðastyrjöldunum lauk og átök hófust að nýju.
- Hessen-Kassel-greifadæmið var stofnað í heilaga rómverska ríkinu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 15. maí - Claudio Monteverdi, ítalskt tónskáld (d. 1643).
- 14. nóvember - Mórits af Nassá, Óraníufursti (d. 1625).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 23. janúar - Zhu Houcong, keisari Ming-veldisins í Kína (f. 1507).
- 10. febrúar - Henry Stuart, lávarður af Darnley, eiginmaður Maríu Skotadrottningar (f. 1545).